Hugbúnaður

KidTimer

KidTimer er forrit sem var og er hugarfóstur eins vinar míns. Hann átti hugmyndina af því og fékk mig til liðs við sig til að gera hugmyndina að veruleika. Hann sá um þarfagreiningu, og hönnun á viðmóti, en ég sá um alla forritun, auk þess sem ég kom með einhverjar hugmyndir varðandi virkni o.þ.h. Öll grafík var í höndum annars félaga hans, Kára Gunnarssonar, sem er mjög fær grafíker/animator.

Með KidTimer geta foreldrar skammtað börnum sínum tíma í heimilistölvunni, og þannig komið í veg fyrir að börnin eyði öllum sínum tíma fyrir framan skjáinn. Þar að auki getur forritið tekið "screenshot" með reglulegu millibili og þannig gert foreldrum kleift að fylgjast með því hvað börnin eru að gera í tölvunni.

Tól/Tækni: Delphi 5.0 / Setup Factory / HTML Help workshop


EZPad

Smelltu til að sjá stærri mynd Það má eiginlega segja að EZPad hafi verið eitt ævintýri útaf fyrir sig. Upphaf hans má rekja til skilaverkefnis í forritunaráfanga í Iðnskólanum í Reykjavík haustið '98. Verkefnið var semsagt það að búa til einfaldan texta-ritil, eins og Notepad. Mér datt svo fljótlega í hug að útvíkka hann aðeins og bæta við fídusum sem nýttust í sambandi við heimasíðugerð. Ég fékk aðstoð frá Þorgeiri, vini mínum, og fljótlega varð útgáfa 2.0 til. Við skelltum upp heimasíðu og hófum að auglýsa forritið inná hinum ýmsu hugbúnaðarsíðum eins og t.d Download.com og Tucows.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Við höfðum varla undan að svara tölvupóstum frá ánægðum notendum, og að sjálfsögðu einhverjum tæknilegum spurningum líka. Þessar móttökur hvöttu okkur til áframhaldandi þróunar. Einhverjum x-mánuðum seinna kom svo útgáfa 3.0 út, gjörbreytt og með mikið fleiri fídusa. Við fengum umfjöllun í Tölvuheimi haustið '99, ritstjórar erlendra tölvublaða höfðu samband við okkur til að fá leyfi fyrir því að dreifa EZPad 3.0 á geisladiskum blaða sinna. Umstangið í kringum þetta var mikið - við fengum helling af tölvupósti og mikið af spurningum. Einnig fengum við mikið af hugmyndum frá notendum varðandi nýja fídusa.

Það kom að því að við byrjuðum á nýrri útgáfu. Það reyndist okkur reyndar erfitt að klára hana sökum tímaleysis, og má nú segja að þetta project og ævintýrið allt sé dottið uppfyrir. Enn þann dag í dag er okkur þó að berast tölvupóstur og fyrirspurnir, auk þess sem EZPad vefsíðan lifir enn. Það er líka alltaf gaman að gera fyrirspurn á google.com og skoða útbreiðsluna :D

Tól/Tækni: Delphi 1.0 - 3.0 / InstallShield Express


Export / Útskipun

Smelltu til að sjá fleiri myndir Útskipun er forrit sem ég bjó til fyrir fyrrverandi vinnuveitanda minn, Hringrás ehf, einhverntíman árið 2000. Þetta einfalda forrit gjörbylti útskipunarferlinu hjá þeim, þar sem nú var hægt að fylgjast með í rauntíma hversu mikið efni var komið út í skip hverju sinni og auk þess var hægt að sjá ýmsar tölulegar upplýsingar aðrar.

Ég þurfti að hafa þetta forrit eins létt og hægt var, og laust við allan "aukabúnað". Þessvegna ákvað ég að nota ekki gagnagrunn, en lét forritið þess í stað nota .ini skrár til þess að geyma útskipanirnar. Þetta hafði sína kosti og galla. Kostirnir voru þeir að ég þurfti ekki að dreifa neinum stuðnings-library-um með, eins og ég hefði þurft ef ég hefði ákveðið að nota t.d Paradox gagnagrunn. Auk þess hefði Paradox verið eini virkilega raunhæfi kosturinn í stöðunni, en ég hafði ekki góða reynslu af honum. Aðal ókosturinn var sá að mun erfiðara var að búa til skýrslur, þar sem ég gat auðvitað ekki notast við SQL-fyrirspurnir.

Í ársbyrjun 2003 báðu þeir mig svo um að gera ákveðna breytingu á forritinu, vegna breytts vinnuferlis hjá þeim. Sú breyting var nokkuð viðamikil og ákvað ég því að skrifa nýju útgáfuna frá grunni, og hafa það web-based í þetta skiptið. Það varð því úr að ég bjó til nýtt útskipunarkerfi í PHP, sem notaðist við MySQL-gagnagrunn. Nánari upplýsingar um það má sjá hér.

Tól/Tækni: Delphi 3.0



Af vefnum ...

Tenglar


Leturstærðir

#
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Innn