Vefir
hot.is - Heilsa og þjálfun

Hot.is er vefur sem ég og Þorgeir vinur minn gerðum að gamni, í sambandi við sameiginlegt áhugamál okkar sem er líkamsrækt. Vefurinn inniheldur matvælagagnagrunn frá Manneldisráði, og gerir fólki kleift að skrá inn hvað það borðar yfir daginn. Sjálkrafa reiknast þá út orkuinnihald máltíðanna, sem og orkuskipting (kolvetni,fita,prótein). Sé einhver fæða ekki í gagnagrunninum, geta notendur bætt henni við sjálfir. Einnig er þarna gagnagrunnur með helstu styrktaræfingum, og getur fólk skráð æfingarnar sínar inn í kerfið. Fleira er í boði þarna, t.d spjallborð þar sem hægt er að fá svör við spurningum ofl.
Vefurinn fór í loftið seint um haustið 2002, og er því þegar þetta er skrifað, tæplega 3 ára gamall. Notendur vefsins eru vel á annað þúsund, og sú tala eykst jafnt og þétt.
Vefurinn er skrifaður frá grunni af okkur, auk stjórnkerfis sem á bakvið hann er, sem gerir okkur kleift að sýsla með notendur, fæðuflokka, fæðutegundir, orkuefni, skýrslur o.fl. Útlitið hannaði
Björn Kristins, vinnufélagi okkar hjá
Innn.
Tól/Tækni: PHP / MySQL gagnagrunnur
Vörulisti Olís

Verkefni sem ég vann fyrir Netlist. Mitt hlutverk var að skrifa veflag ofan á MySQL gagnagrunn sem þeir hjá Olís höfðu þegar sett upp. Auk þess að birta flokka og vörur, er þarna einnig svokölluð ISAT-flokkun eftir atvinnugreinum og pöntunarform.
Krafa þeirra var sú að geta exportað nýjum gögnum hvenær sem er yfir grunninn sem fyrir var, án þess að það þyrfti að eiga nokkuð við vefviðmótið. Eðli málsins samkvæmt er virknin þannig.
Tól/Tækni: PHP / MySQL gagnagrunnur
Island Pro Travel

Vefur sem ég tók að mér að gera fyrir íslenska/þýska ferðaskrifstofu. Vefurinn er á 3 tungumálum (þýsku, ensku og svissnesku). Hann er settur upp í HagurWeb umsýslukerfinu mínu.
Tól/Tækni: PHP / MySQL gagnagrunnur / HagurWeb