Vefkerfi
HagurWeb
HagurWeb er vefumsýslukerfi sem ég hef verið að leika mér að gera undanfarið.
Í kerfinu er hægt að hafa ótakmarkað magn af síðum. Hægt er að setja upp ótakmarkað magn af sniðmátum, og velja svo hvaða síða notar hvaða sniðmát. Útlit valmyndar/veftrés vefsins er sett upp á einfaldan hátt í gegnum kerfið, og eru engin takmörk fyrir því hvernig þær líta út. Hægt er að sýsla með stílsnið (.css skjöl) í gegnum kerfið á einfaldan hátt.
Allt er viðkemur vefnum er hægt að sýsla með í kerfinu og þarf því ekkert að eiga lengur við nein HTML skjöl eða neitt slíkt, og er FTP-aðgangur inná vefsvæðið því ekki nauðsynlegur.
Vefir sem nota HagurWeb: hringras.is, islandprotravel.de og merkurpos.com
Tól/Tækni: PHP / MySQL gagnagrunnur
Útskipun - Export
Vefútgáfa af útskipunarkerfi sem ég gerði fyrir fyrrverandi vinnuveitanda minn. Eldri útgáfa kerfisins var skrifuð í Delphi, en þegar ég þurfti að gera breytingar á kerfinu samkvæmt óskum frá þeim, þá ákvað ég að skrifa það í PHP og nota MySQL gagnagrunn.
Meðal breytinga í vefútgáfunni eru betri skýrslur og útprentanir.
Tól/Tækni: PHP / MySQL gagnagrunnur